152. löggjafarþing — 61. fundur,  4. apr. 2022.

samvinna barnaverndar og sýslumanna í umgengnismálum.

[15:38]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Ásmundur Einar Daðason) (F):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessa fyrirspurn. Hægt er að svara málinu almennt en ekki varðandi einstaka mál eða mál sem hafa verið í umfjöllun í fjölmiðlum eða eitthvað slíkt. Ég mun því ekki vísa til neinna slíkra mála. Það er auðvitað þannig, eins og þingmaðurinn fór yfir, að þarna koma tvö kerfi saman, barnavernd annars vegar, sem heyrir undir mitt ráðuneyti, og síðan sýslumenn, sem heyra undir dómsmálaráðuneytið. Það hefur verið unnið að því að þróa og móta verklag, m.a. með tilraunaverkefni sem keyrt var hjá sýslumanninum í Vestmannaeyjum, sem fól í sér að efla og þróa samvinnu sýslumanna, lögreglu, félagsþjónustu og barnaverndar í málum sem lúta að velferð og högum barna. Þetta myndi þá m.a. heyra þar undir og sérstaklega með áherslu á börn sem búa við ofbeldi á heimilum í forsjármálum. Verkefnum var komið af stað á síðasta kjörtímabili í samvinnu þáverandi félags- og barnamálaráðuneytis og dómsmálaráðuneytis. Í tengslum við þetta verkefni voru mótaðar sameiginlegar verklagsreglur í Vestmannaeyjum árið 2021. Í framhaldi af þessu verkefni var ákveðið að fela ríkislögreglustjóra að móta verklag um varanlegan stuðning við börn í viðkvæmri stöðu á landsvísu í samvinnu allra áðurnefndra kerfa, þar með talið fyrir sýslumenn og barnavernd. Verklagið á að byggja á lögum um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna, sem er ný heildarlöggjöf sem á að tryggja samtal á milli kerfa. Nokkrir staðir á landinu eru að vinna að þessu verkefni, m.a. er unnið að því í Breiðholti, í Mosfellsbæ og í umdæmi lögreglustjórans á Norðausturlandi og er byggt á reynslunni frá Vestmannaeyjum. Vonir standa til að niðurstaða og þar með talið verklag í svona málum liggi fyrir næsta vetur. Ég vil aftur þakka hv. þingmanni fyrir þessa fyrirspurn og vona að þetta svari henni.