ákvörðun nr. 215/2021 um breytingu á IX. viðauka við EES-samninginn.
Frú forseti. Ég verð eiginlega að halda aðeins áfram með þetta samtal milli hæstv. ráðherra og hv. þm. Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur vegna þess að þetta er náttúrlega ekkert eins einfalt og hæstv. ráðherra segir, að í okkar litla samfélagi sé svo auðvelt að ná ásættanlegri samkeppni í mörgum geirum, og það á ekki síst við um bankakerfið. Á þetta hefur Samkeppniseftirlitið t.d. bent, eins og kom fram áðan. Það er hins vegar mjög mikilvægt að hæstv. forsætisráðherra hafi lýst því yfir hérna fyrr í dag að það verði tryggt að fáum við ekki allt upp á borðið og fáum við ekki allar þær upplýsingar sem við þurfum til að það sé hafið yfir allan vafa að hér hafi allt átt sér stað eins og best verður á kosið, þá verði einfaldlega lögum breytt. Það er mjög mikilvægt fyrir okkur sem erum tortryggin á þetta að fá slíka yfirlýsingu frá ríkisstjórnarhliðinni. Þá skulum við reikna með að fyrir því sé meiri hluti í þinginu vegna þess að þetta þurfum við að gera.
Það er hins vegar, eins og komið var inn á áðan, alveg ótrúlega mikilvægt að við fáum inn í íslenskt bankakerfi stóra langtímafjárfesta að utan. Ég er satt að segja hissa á að hæstv. ráðherra skyldi hafa verið að efast um að það væri skoðun allra. Það er kannski ekki skoðun allra en ég hef ekki heyrt sjónarmið í aðra átt mjög lengi frá stórum hluta fólks. Það sem er auðvitað óheppilegt og vont við þessa sölu núna, fyrir utan að það liggur ekki allt fyrir um hvernig að henni var staðið, er að það hefði að mörgu leyti verið betra að vera að selja þennan banka í þeirri stöðu að við værum með evru. Það hefði aukið líkurnar til mikilla muna á að erlendir aðilar, stórir bankar hefðu sýnt áhuga á því að koma hingað inn og fjárfesta. Það er ein ástæðan fyrir því að það er út í hött sem sumir stjórnarliðar segja, að það sé ótímabært og ekki rétt að vera að ræða Evrópusambandið, fyrir utan að einhverjir hnýta því núna við að það sé ósmekklegt vegna þess að það er styrjöld úti í heimi og gleyma því að hvert einasta ríki í nágrenni við okkur er einmitt að endurskoða afstöðu sína til alþjóðasamstarfs út af þeim málum. Friðsamlegar lausnir, lýðræði, mannréttindi og jafnrétti eru auðvitað miklu öflugri vopn í baráttu gegn stríði en nokkurn tímann vopn. Svíar og Finnar eru að ræða núna hvort þeir eigi víkka út sitt samstarf og bæta við Evrópusambandið NATO-aðild, og sitt sýnist hverjum þar auðvitað. Danir leggja til þjóðaratkvæðagreiðslu í sumar þannig að þeir taki þátt í öryggissamstarfi Evrópusambandsins sem þeir hafa ekki verið aðili að. Svisslendingar hafa vikið frá hlutleysisstefnu sinni og Þjóðverjar hafa gert grundvallarbreytingar á sinni stefnu. Þannig að núna þegar við erum að fjalla um EES-mál held ég að það sé mjög viðeigandi að við hnykkjum á því að við getum fengið meira út úr þessu samstarfi en eins og staðan er núna. Það er rétt hjá hv. þm. Andrési Inga Jónssyni að þær innleiðingar sem hér eiga sér stað eiga ekki alltaf við íslenskt samfélag og við erum auðvitað tiltölulega smærri eining en flest þessi ríki. En við því er að segja auðvitað að þess þá bagalegra er það að við höfum þessa takmörkuðu aðkomu að lagabreytingum sem við höfum í gegnum EES-samninginn. Við höfum verið að reyna að styrkja hagsmunagæslu en það er einfaldlega ekki nóg. Það væri betra fyrir okkur að vera bara þarna við borðið og geta þá haft áhrif beint þegar hugmyndir eru að fæðast og verða að frumvörpum og lögum. Eins og við þekkjum er það mjög algengt að ríki vinni saman þegar þau eiga líka hagsmuni, þannig að ég hef engar áhyggjur af því að við gætum ekki fengið töluvert út úr því.
En ástæðan fyrir að ég kom hingað upp er að þetta mál er tiltölulega tæknilegs eðlis og má eiginlega efast um að við værum að fjalla um það ef við fengjum þetta ekki í gegnum EES-samninginn vegna þess að við erum fáliðuð, ekki bara hér á þingi heldur höfum við lítið af sérfræðingum sem eru að vinna á okkar snærum. Það er bara mjög margt sem við erum að innleiða í gegnum EES-samninginn sem hefur verið ótrúleg réttarbót fyrir fólkið í landinu og nægir að nefna vinnurétt, félagsmál, mannréttindi, persónuvernd og ýmislegt annað sem ég er ekki viss um að við hefðum haft bolmagn í að byrja eða hugsa frá grunni og til enda. En þetta gildir ekki aðeins um einstaklinga heldur kjarnann í hugsun Evrópusambandsins þegar um er að ræða atvinnulíf og ekki síst fjármálafyrirtæki af því að, eins og hæstv. ráðherra sagði, markmiðið með frumvarpinu er að gera fjármálakerfi aðlaðandi fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki og tryggja að lítil og meðalstór fyrirtæki búi við hagstæðari aðstæður en nú er. Þarna hittir hún algerlega naglann á höfuðið því að ef við skoðum hugmyndafræði Evrópusambandsins þegar þau setja fram frumvörp eða þegar þau eru að móta aðgerðir fyrir fyrirtæki og atvinnulíf þá nota þau, í íslenskri þýðingu, slagorðið: Hugsum smátt fyrst. Regluverkið er hugsað í kringum lítil og meðalstór fyrirtæki sem eru á evrópskan mælikvarða 50 manna fyrirtæki og upp í 500 manna fyrirtæki, frekar stór hér á landi en samt sem áður smá. Ef lekapróf sýna að þetta nýtist þessum fyrirtækjum eru þau óhrædd við að skjóta þeim fram og stóru fyrirtækin munu örugglega geta vel við unað líka, eða geta unað við það a.m.k. Mér finnst svo sérkennilegt að í þessu 500 milljóna bandalagi, eða tæplega það, skuli þetta vera hugsunin á sama tíma og mér finnst, hafandi verið þátttakandi hérna í fimm ár, eins og frumvörp og hugmyndir sem eru smíðaðar frá grunni hér um okkar íslenska atvinnulíf séu eiginlega akkúrat öfugt, að þau séu sniðin utan um stærstu fyrirtækin og síðan fá hin einhvern veginn að damla inni í þessu. Nægir bara að nefna sjávarútveginn í því sambandi þar sem mesti tíminn fer alltaf í að ræða fimm stærstu eða tíu stærstu, eða hvað menn vilja nú nota.
Við munum auðvitað styðja þetta frumvarp í Samfylkingunni, enda er það okkar skoðun að það sé mikilvægt og ekki síst fyrir íslensk fjármálafyrirtæki sem vilja líka vera í alþjóðlegum viðskiptum. Alþjóðleg viðskipti eru lykillinn að okkar góðu stöðu, að halda þeim sem mestum, og því þurfum að við að búa vel að þessum litlu og meðalstóru fyrirtækjum.