152. löggjafarþing — 61. fundur,  4. apr. 2022.

ákvörðun nr. 215/2021 um breytingu á IX. viðauka við EES-samninginn.

462. mál
[17:22]
Horfa

Logi Einarsson (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Jú, ég held að við eigum auðvitað alltaf að nýta okkur alla möguleika sem við getum til að vera forvirk og reyna að sjá hvað bíður handan hornsins. En smæðin gerir okkur erfitt fyrir og við finnum vel fyrir því, þar sem við erum fimmtán sinnum minni en smáríkið Noregur, hvað við höfum miklu minni tækifæri til að gæta okkar hagsmuna í innleiðingarmálum. Ég held að við værum í betri stöðu ef við værum þarna inni og kæmum fyrr að. Það er algjörlega hárrétt hjá hv. þingmanni varðandi græna samfélagssáttmálann og grænu umskiptin sem eru nauðsynleg. Mér sýndist á fréttum að það hafi komið út ný skýrsla hjá Sameinuðu þjóðunum sem segir að ef toppnum verði ekki náð í losun á næstu þremur árum þá sé þetta bara búið. Auðvitað hafa oft komið viðvaranir en ég held að það sé alveg raunveruleg ástæða til að hafa áhyggjur af því sem er að gerast. Það þarf skiptir lykilmáli. En góðu fréttirnar eru auðvitað að Evrópusambandið virðist vera að taka svona skýrustu stöðuna í þessari baráttu og ásamt auðvitað gjaldmiðli og friðar- og öryggismálum þá held ég að loftslagsmálin séu kannski allra mesta ástæðan fyrir því að við eigum að taka skrefið þarna inn og vera bara stoltir þátttakendur og leggja af mörkum eins og við getum með reynslu, með þekkingu en líka að njóta úr hinni áttinni. Jú, auðvitað eigum við að vera forvirk og sjá fyrir hvað mun koma inn en ég held að það væri best að við værum þarna úti.