ákvörðun nr. 215/2021 um breytingu á IX. viðauka við EES-samninginn.
Frú forseti. Já, smæðin hamlar okkur að vissu marki en það eru líka tækifæri í henni. Við erum kvikara samfélag að ýmsu leyti. Þess vegna langar mig að tala um enn eina Evrópureglugerðina sem heitir á útlensku „Taxonomy“, sem ég held að útleggist sem rammi, þetta er sem sagt rammi til að greiða fyrir sjálfbærri fjárfestingu og er heilmikið og stórt regluverk sem er á leiðinni til okkar frá Brussel og snýst í rauninni bara um það hvað fjármálafyrirtæki megi flokka sem sjálfbæra fjárfestingu til að við séum með það alveg á hreinu sem samevrópskt fjárfestingarumhverfi hvað er græn fjárfesting og hvað ekki. Að vísu villtist Evrópusambandið aðeins af leið þegar það sætti sig við að fjárfestingar í innviðum fyrir jarðgas væru flokkaðir þarna undir þannig að þó að Evrópusambandið sé sennilega að gera það besta sem er verið að gera á hinu stóra sviði er það fjarri því fullkomið. En varðandi þennan ramma þá hefur legið fyrir að þetta væri á leiðinni til Íslands frá því áður en hann var einu sinni samþykktur. Þess vegna kom mér dálítið á óvart sofandahátturinn í fjármálaráðuneytinu. Ég held að ég hafi fyrst spurt þáverandi ráðherra hvort væri ekki rétt að fara að skikka t.d. lífeyrissjóðina til að losa um eignarhald í olíuiðnaði, bara í því allra versta, og kom algjörlega að tómum kofanum hjá ráðherranum þá. Svo hef ég spurt reglulega ráðherra sem komu eftir þeim ráðherra hvort eitthvað sé að frétta og það er aldrei neitt að frétta ofan úr ráðuneyti. Samt er þessi reglugerð alltaf á leiðinni til okkar og fjármálageirinn á Íslandi er tilbúinn. Hann er búinn að meta og greina þetta og hann er kominn með lögfræðinga og sjálfbærnifræðinga sem eru tilbúin að gera þetta. En það vantar frumkvæðið (Forseti hringir.) frá stjórnvöldum til að Ísland sé ekki lagalegur eftirbátur annarra Evrópuríkja. (Forseti hringir.) Jú, það myndi kannski breytast með Evrópusambandsaðild en það væri líka hægt að hysja upp um sig buxurnar hér og nú.