ákvörðun nr. 215/2021 um breytingu á IX. viðauka við EES-samninginn.
Frú forseti. Já, auðvitað getum við hysjað upp um okkur buxurnar og gert miklu betur. Svo ég leggi gott orð til ríkisstjórnarinnar að einhverju leyti þá höfum við náð meiri árangri í að laga þennan innleiðingarhalla, en við þurfum að gera enn betur en það. Þegar við erum búin að ná tökum á því gætum við kannski farið að vera forvirkari. Það á náttúrlega í siðuðu samfélagi ekki að þurfa að setja reglur um allt og sem betur fer eru bara reglur um kannski 1% af því sem við gerum. Annað er eitthvað sem við höfum komið okkur saman um og lífeyrissjóðir og bankar og fjármálastofnanir ættu fyrir löngu að vera búin að setja sínar eigin reglur um þessi siðferðilegu viðmið. En það er rétt hjá hv. þingmanni að Evrópusambandið er síður en svo eitthvert himnaríki. En það er heldur ekki brennandi hús eða helvíti, eins og er stundum talað um hér í salnum, og við þurfum aðeins að ræða það af meiri virðingu af því að þrátt fyrir allt er það leiðandi á svo mörgum sviðum sem skipta okkur máli. Það er alveg rétt hjá hv. þingmanni líka að smæðin þarf ekki endilega vera hamlandi, hún getur gert okkur kvikari, eins og hv. þingmaður sagði, en stundum getur þú verið of kvikur ef þú ert smár og ég bendi t.d. á að við erum númer 1 í heiminum þegar kemur að almennri netnotkun einstaklinga en erum númer 67 þegar kemur að netöryggi. Það er nú hægt að tileinka sér alls konar hluti, góða og slæma. En við skulum endilega reyna að nýta okkur hvað við erum þrátt fyrir allt kvikt þjóðfélag með tiltölulega mikið jafnrétti, tiltölulega góða menntun og tiltölulega mikið allt mögulegt. En við gætum líka lært tiltölulega mikið af öðrum.