ákvörðun nr. 215/2021 um breytingu á IX. viðauka við EES-samninginn.
Ég hef kannski verið óskýr áðan, ég var svo sem ekki að halda því fram að ESB væri eða ætti að verða hernaðarbandalag. Það er hægt að vinna að friði með margvíslegum hætti án þess að setja upp langdrægar eldflaugar. Ég held að mjúk nálgun við frið sé miklu skynsamlegri. Þar höfum við auðvitað ýmislegt fram að bjóða sem er okkar helsta vara í utanríkismálum, sem er jafnrétti, friður, mannréttindi, mannúð. Mér sýnist að það séu kannski þau svið sem Evrópusambandið er að reyna að dýpka sig á. Vissulega eru hlutir innan Evrópusambandsins og innan einstakra landa Evrópusambandsins sem eru lítið huggulegir, austarlega í sambandinu sérstaklega. Ég held að það sé hins vegar skynsamlegt að reyna einhvern veginn að vinna að því með þrýstingi og öðrum slíkum hlutum að koma þeim inn á betri slóð en að halda þeim fyrir utan. Ég held að það sé betra. En ESB getur eflaust gert betur í þeim málum. Mörg smáríki sem hafa gengið inn í sambandið eða smærri ríki hafa sýnt það með sínum sérreglum við inngangssamninginn að það er hægt að virða sérstöðu þjóða. Ég held að innganga norrænu þjóðanna, Finnlands t.d., hafi sýnt hvað er hægt að gera í landbúnaðarmálum þar sem landbúnaður norðan við 62. breiddargráðu er skilgreindur alveg sérstaklega. Þeir geta bæði styrkt sinn landbúnað en fá líka mikla styrki frá sambandinu. Ég er alveg sannfærður um það líka að ef við erum stórveldi í sjávarútvegi sé það okkar helsta samningsmarkmið að ná ásættanlegum samningi þar. Ég held að reynslan sýni okkur og aðrar þjóðir hafi sýnt okkur að það verður alveg hægt.