ákvörðun nr. 215/2021 um breytingu á IX. viðauka við EES-samninginn.
Virðulegur forseti. Þetta er svona skemmtilega lúmskt gagnsæismál sem við erum með í höndunum, eins og kom aðeins fram í máli hv. þm. Gísla Rafns Ólafssonar. Ég má til með að monta mig af skýrslu sem ég var að renna yfir um daginn, aðallega vegna þess hvað hún heitir skemmtilegu nafni. Hún heitir á ensku „Empowering EU capital markets for SMEs — making listing cool again“ eða hvernig við eflum fjármálamarkaði í þágu smárra og meðalstórra fyrirtækja og gerum það kúl aftur að skrá fyrirtækin. Þessi tillaga til þingsályktunar sem við erum með í höndunum snýst einmitt um það, ekki bara að búa til einhverja umgjörð þar sem fjármagn verður þessum fyrirtækjum aðgengilegt heldur þar sem fjármagn verði þeim aðgengilegt á einhvern gagnsæjan og ábyrgan hátt þannig að þau geti fjármagnað sig á markaði sem er af ákveðnum gæðastandard, sem er kannski helst það sem ég myndi segja, vegna þess að það vill oft brenna við hjá kannski sérstaklega fyrirtækjum á fyrri stigum lífs síns að þau þurfa að reiða sig á ótryggari og þá oft, hvað skal segja, grárri fjármögnunarleiðir. Þetta skiptir máli vegna þess að smá og meðalstór fyrirtæki eru drifkrafturinn í atvinnulífinu. Það sjáum við býsna vel í gegnum Covid, það að einstaklingar og litlir hópar geti starfað saman eflir atvinnumarkaðinn miklu hraðar en nokkuð annað. Það sem þessi fyrirtæki eru líka að færa okkur er nýsköpun á sviðum sem stærri og ráðsettari fyrirtæki hafa kannski ekki velt fyrir sér að hasla sér völl á.
Það var nefnt hér í einhverri ræðunni fyrr í dag að það væri miður hvað innleiðingarhalli Íslands á gerðum frá Evrópusambandinu væri oft mikill. En það er ekki bara af því að við viljum standa okkur vel í bekknum, að við viljum fá góða einkunn hjá sameiginlegu EES-nefndinni, heldur vegna þess að mörg af þeim málum sem við erum að fá til okkar í gegnum EES-samninginn eru þjóðþrifamál á einhvern hátt og bæta samfélagið. Þess vegna langar mig að nefna í samhengi við þessa reglugerð, sem er frá árinu 2019, hvort við ættum kannski að líta samhliða til annarra reglugerða sem komu til síðar, annaðhvort með því að innleiða efnisinntak þeirra án þess endilega að vera skikkuð til þess í gegnum sameiginlegu EES-nefndina eða með því að slá í klárinn þannig að þær skili sér hraðar inn til okkar.
Sú reglugerð sem við fjöllum um hér í dag er frá árinu 2019. Frá þeim tíma hefur margt gerst varðandi fjármálamarkað innan Evrópusambandsins og þá er kannski helst að nefna þá stórauknu áherslu sem hefur verið lögð á sjálfbærar fjárfestingar, á að nota fjármálakerfið sem verkfæri í þágu baráttunnar gegn loftslagsbreytingum. Um þennan þátt fjármálakerfisins hefur sú ríkisstjórn sem nú situr og þær sem síðast komu á undan verið á tíðum allt of sofandi. Fjármálakerfið heldur um alveg ofboðslega mikið af peningum sem þarf að koma í vinnu, sem þarf að fjárfesta. Þess vegna skipti máli á 145. löggjafarþingi þegar t.d. var bætt inn í lög um lífeyrissjóði ákvæði um að lífeyrissjóðir skuli setja sér siðferðisleg viðmið í fjárfestingum. Í fullkomnum heimi gætum við sagt að siðferðileg viðmið lífeyrissjóða myndu fela í sér að þeir fjárfestu ekki í iðnaði sem tortímdi framtíðinni. Reyndin er hins vegar sú að þessi ákvæði hefur reynst erfitt að túlka, það er ekki nógu mikil eftirfylgni með þeim og þau mættu kannski ná yfir fleiri geira fjármálakerfisins þannig að það sé allt að róa í sömu átt.
Á 146. löggjafarþingi, sem er þingið eftir að ákvæði um siðferðileg viðmið í fjárfestingum lífeyrissjóðanna kom í lagasafnið, spurði ég af forvitni þáverandi fjármála- og efnahagsráðherra hvort hann teldi þurfa að skerpa á reglum um fjárfestingarstefnu lífeyrissjóða til að það væri alveg á hreinu að þeir ættu að þjóna loftslagsmarkmiðum og markmiðum um sjálfbærni. Þegar ráðherrann svaraði þá vísaði hann til siðferðilegu viðmiðanna sem hann taldi að myndu ná utan um þetta og auk þess ætti að vera frekar gagnsætt í hverju sjóðirnir fjárfestu og að þær upplýsingar lægju mjög oft fyrir. Í framhaldi af því spurði ég ráðherrann skriflega hversu stór hluti eignasafns lífeyrissjóðanna væri bundinn í starfsemi sem fælist í vinnslu og sölu jarðefnaeldsneytis, bara til að taka stikkprufu af því hversu gagnsætt þetta væri. Þá kom í ljós að ráðherrann gat ekki svarað því vegna þess að þetta væru aðilar ótengdir ríkinu sem væri ekki hægt að krefjast þess að veittu þær upplýsingar sem óskað var eftir, þannig að gagnsæið gagnvart framkvæmdar- og löggjafarvaldinu var alla vega lítið.
Síðan gróf ég aðeins meira eftir þessu og á 146. þingi kom aftur fram að lífeyrissjóðum bæri að senda Fjármálaeftirlitinu greinargerð með fjárfestingarstefnu þar sem koma skyldi fram hvernig sjóðirnir væru að framfylgja reglum um siðferðileg viðmið í fjárfestingum sínum. En svo kemur í ljós að Fjármálaeftirlitið hefur engin viðmið varðandi það hvernig þetta er allt saman metið þannig að skýrslurnar skila sér og það er óljóst út frá hverju lífeyrissjóðirnir fengju einkunn, ef svo væri á annað borð.
Þetta langar mig að nefna, eins og ég kom inn á í andsvari við hv. þm. Loga Einarsson, vegna þess að það er von á því sem er kallað „taxonomy“ eða rammi utan um sjálfbærar fjárfestingar fjármálastofnana frá Evrópusambandinu, sem snýst bara um það að fjármálastofnanir í allri Evrópu sitji í rauninni við sama borð. Svona reglur snúast ekki bara um að skikka lífeyrissjóði, banka og aðrar fjármálastofnanir til að gera ákveðna hluti, heldur líka að tryggja samkeppnishæfni þeirra í álfunni þannig að það sé ekki hægt að stunda grænþvott með einhverjum tilhæfulausum staðhæfingum um sjálfbærar fjárfestingar sem síðan reynist kannski enginn fótur fyrir.
Þessi flokkunarreglugerð Evrópusambandsins sem er á leiðinni er engan veginn fullkomin en hún er það sem fjármálakerfið á Íslandi mun þurfa að starfa eftir og hún er það sem fjármálakerfið á Íslandi er byrjað að vinna í áttina að vegna þess að það er skrefinu á undan stjórnvöldum. Þannig hefði það samt ekkert þurft að vera, forseti. Ef ríkisstjórnin á 145., 146. eða 147. þingi, þegar við vorum að ræða þetta hér í þessum sal, (Forseti hringir.) hefði bara séð hvað klukkan slær og innleitt einhver viðmið á Íslandi hefði Ísland þá verið í forystu í Evrópu í þessum málum (Forseti hringir.) og skapað fjármálafyrirtækjum á Íslandi ákveðið forskot frekar en að bíða eftir því að falla á tíma.