ákvörðun nr. 274/2021 um breytingu á XI. viðauka og bókun 37 við EES-samninginn o.fl.
Virðulegi forseti. Í greinargerð þessarar tillögu er fjallað um fjárhagsleg áhrif þessarar innleiðingar. Þar segir að hluti af innleiðingarferlinu sé fólginn í Kóðanum í fjarskiptafrumvarpinu sem var til umfjöllunar hér í síðustu viku. Um þá fjármögnun segir:
„Verði fyrrnefnt frumvarp til nýrra fjarskiptalaga að lögum er áætlað að kostnaður ríkisins geti aukist um allt að 185 millj. kr. á ári og felist að öllu leyti í auknum kostnaði við starfsemi Fjarskiptastofu.“
Einnig segir:
„Áætluð kostnaðaraukning, verði frumvarpið að lögum, er ófjármögnuð í fjármálaáætlun 2022–2026. Það er því gert ráð fyrir að ófjármagnaður kostnaður verði tekinn til skoðunar við endurskoðun fjármálaáætlunar.“
En þegar litið er til fjármálaáætlunar sem verður hér til umfjöllunar á morgun er ekki minnst á þessa kostnaðaraukningu. Þar sem um er að ræða 10% kostnaðaraukningu frá gildandi fjárheimildum tel ég að gera þurfi grein fyrir slíku verkefni í slíkri áætlanagerð. Því spyr ég hæstv. utanríkisráðherra: Er ekki tilefni til að endurskoða framlagða fjármálaáætlun og skerpa á áhrifum þessarar innleiðingar og Kóðans í heild á fjárheimildir ríkisins vegna fjarskipta á komandi árum?