152. löggjafarþing — 61. fundur,  4. apr. 2022.

ákvörðun nr. 274/2021 um breytingu á XI. viðauka og bókun 37 við EES-samninginn o.fl.

463. mál
[18:11]
Horfa

utanríkisráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S) (andsvar):

Herra forseti. Já, það er rétt að neytendur munu njóta góðs af ákvæðunum um hámarksgjaldtöku vegna símtala og smáskilaboða innan EES-svæðisins. Þar af leiðandi verða markaðsaðilar á móti fyrir tekjumissi í þessu tilviki. Heilt yfir eru þeir aðilar þó fylgjandi upptöku þessara reglna vegna þess að það er ýmislegt annað sem skiptir þá verulegu máli í innleiðingu á þessu og þetta er í raun sömuleiðis í takt við það hvernig þessi geiri er að breytast hratt og að ör þróun er á þessu sviði. Eðli þessara fyrirtækja hefur að miklu leyti breyst, ekki endilega þannig að fyrirtækin standi verr fyrir vikið. Ég get ekki svarað því hver krónutalan verður í hringingum eða smáskilaboðum, en ég geri ráð fyrir að það séu líka upplýsingar sem hægt er að koma með fyrir nefndina þegar nefndin fer yfir málið.