152. löggjafarþing — 61. fundur,  4. apr. 2022.

ákvörðun nr. 76/2022 um breytingu á IX. viðauka við EES-samninginn.

501. mál
[18:24]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P):

Forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir framsöguna. Ég held að það sé mikilvægt, þó svo að við séum þegar búin að setja lög í tengslum við sértryggð skuldabréf, að við bætum við þeim skilyrðum sem koma með þessari reglugerð. Það er nú einu sinni þannig að við þurfum ekki að fara langt til baka, u.þ.b. 14 ár eða svo, til að hugsa um það hvernig stundum voru gefin lán og skuldabréf og annað þar sem engin veð voru í raun að baki. Það er því gott að við lærum af mistökum fortíðarinnar og bætum regluverkið og tel ég því mikilvægt að þessi reglugerð fái fljóta og góða afgreiðslu hér á Alþingi.