um fundarstjórn.
Virðulegur forseti. Þann 1. febrúar sl. gagnrýndi ég hér í ræðustól að ríkisendurskoðandi væri fluttur af vettvangi löggjafarvaldsins og yfir til framkvæmdarvaldsins. Þarna var verið að misbeita 36. gr. starfsmannalaga enda alveg ljóst af lögskýringargögnum að ákvæðið snýst um heimild ráðherra til flutnings embættismanns úr einu embætti í annað en nær hvorki til dómara né embættismanna hjá sjálfstæðum eftirlitsstofnunum sem starfa á vegum Alþingis. Sama dag sendi umboðsmaður Alþingis ráðherra bréf og vakti athygli á því að ríkisendurskoðandi heyrir lagalega undir Alþingi; hann er sjálfstæður og engum háður í störfum sínum og stendur utan stjórnkerfis framkvæmdarvaldsins. Eftir að hafa aflað gagna hætti umboðsmaður athugun sinni með vísan til þess að Alþingi er aðili að málinu. Forseti Alþingis hefur tekið afgerandi afstöðu til lagagrundvallarins og eftirlitshlutverk umboðsmanns tekur ekki til starfa og ákvarðana löggjafans. Þannig varpaði umboðsmaður Alþingis í raun boltanum til Alþingis og eftir stendur spurningin: Ætlum við að sætta okkur við þessa túlkun þingforseta og ráðherra á 36. gr. starfsmannalaga og leyfa þessu fordæmi að standa? Eða ætlum við að bregðast við með einhverjum hætti?