um fundarstjórn.
Virðulegur forseti. Ég ætla að taka hér undir orð hv. þm. Jóhanns Páls Jóhannssonar. Hæstv. forseti sem og hæstv. menningar- og viðskiptaráðherra hafa sett stórhættulegt fordæmi með skipan ríkisendurskoðanda í embætti án auglýsingar. Það þekkist hvergi í löndum sem kenna sig við nútímalega og óspillta stjórnsýslu að aðili á borð við ríkisendurskoðanda, sem m.a. er falið það gífurlega mikilvæga hlutverk að hafa eftirlit með íslenskri stjórnsýslu og eignum ríkisins, sé fenginn til að stíga yfir línu sem á að virða í því skyni að efla virðingu fyrir eftirlitsaðilum hér á landi sem svo tilfinnanlega skortir á í íslensku þjóðfélagi. Almenningur á að geta treyst því að eftirlitsaðilar, hvort sem það er umboðsmaður Alþingis, dómendur eða, eins og í þessu tilfelli, ríkisendurskoðandi, hafi traust og burði til að sinna sínum lögbundnu verkefnum án þess að stjórnvöld telji sig geta framvísað gylliboðum um ráðuneytisstjórastól í lok starfsævinnar. Ég endurtek: Þetta er fordæmi sem má ekki setja og við leiðréttum það með því að samþykkja lagabreytingu sem tekur af allan vafa um það.