um fundarstjórn.
Herra forseti. Eins og hv. þm. Dagbjört Hákonardóttur fór hér vel yfir þá er þetta vont fordæmi sem ógnar sjálfstæði eftirlitsstofnana sem starfa á vegum Alþingis. Þetta fordæmi kallar á viðbrögð og þess vegna höfum við, hópur þingmanna, lagt fram frumvarp til breytinga á lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Við leggjum til að gerðar verði breytingar á 36. gr. laga og bætt verði inn málsgrein sem taki af allan vafa um að þetta ákvæði nái ekki til dómara eða til embættismanna hjá eftirlitsstofnunum sem starfa á vegum þingsins. Þannig viljum við hnykkja á því að það taki aðeins til embætta og starfa sem heyra undir framkvæmdarvaldið. Þetta er mikilvægt. Þetta snýst um að verja þrískiptingu ríkisvalds og virðingu þeirra eftirlitsstofnana sem starfa á vegum Alþingis og ég vonast eftir breiðum stuðningi við þetta mál frá þingmönnum úr öllum flokkum.