152. löggjafarþing — 61. fundur,  4. apr. 2022.

stjórn fiskveiða o.fl.

451. mál
[20:10]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir framsöguna. Ég er með spurningu til ráðherra. Nú kemur fram bæði í greinargerðinni og í framsögu ráðherra að ekki hafi verið neinar veiðar hér á landi á túnfiski um árabil og þar af leiðandi ekki mikil reynsla af þeim. Mig langar að heyra frá hæstv. ráðherra: Af hverju er verið að fara í þetta núna? Er það bara að það fékkst kvóti? Hafa einhverjar útgerðir verið að óska eftir þessu eða er þetta hreinlega komið innan úr ráðuneytinu?