152. löggjafarþing — 61. fundur,  4. apr. 2022.

stjórn fiskveiða o.fl.

451. mál
[20:13]
Horfa

félags- og vinnumarkaðsráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson) (Vg) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Eftir því sem ég best veit er það mat Atlantshafs-túnfiskveiðiráðsins að hér sé um að ræða sjálfbærar veiðar. Ég veit ekki betur en að svo sé og annars væri ekki verið að fara fram með þetta frumvarp með þessum hætti.

Til að svara spurningu hv. þingmanns sem ég svaraði ekki áðan þá var það þannig að samtök félaga í sjávarútvegi báðu ráðuneytið um að skoða málið. Ráðuneytið féllst á að gera það en benti þá á að um þetta yrði að vera sátt við félög sjómanna. Ég tel að svo sé og það hafi verið tryggt við gerð frumvarpsins.