stjórn fiskveiða o.fl.
Herra forseti. Ég þakka ráðherra fyrir framsöguna. Ég er töluverð áhugamanneskja um að við Íslendingar með útgerðarfélögin okkar nýtum okkur þær náttúruauðlindir sem við höfum eins vel og rétt og eðlilegt er, og ég er líka mjög hrifin af túnfisk þannig að ég fylgdist vel með þessu máli og las það vel í gegn. En mér finnst það bara segja hálfa sögu. Þetta segir þá sögu að við erum loks komin með eftirsóttar aflaheimildir í fiski sem nýtur mikilla vinsælda og er dýr vara. Af hverju hafa íslensk útgerðarfélög, íslensk skip, ekki nýtt sér þessa heimild til þessa að mati hæstv. ráðherra? Og af hverju þarf að gera þessa undanþágu í stað þess að gera það sem alla jafna er gert? Við höfum aðgang að rándýru hráefni. Jú, það kostar væntanlega eitthvað að sækja það, sérútbúin skip og annað slíkt, en okkar allra bestu (Forseti hringir.) útgerðaraðilar eru til þess bærir að reikna út arðsemi af slíku. Ég átta mig hreinlega ekki á því (Forseti hringir.) af hverju við höfum ekki, í öll þessi ár sem við höfum haft þessar heimildir, nýtt þær?