stjórn fiskveiða o.fl.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Eins og ég skil málið að þá er það einfaldlega vegna þess að hér á landi er ekki til staðar sá búnaður og sú þekking sem þarf til að nýta þessa auðlind og þess vegna hafi þessar veiðar ekki verið stundaðar hingað til. Með þessu bráðabirgðaákvæði er verið að reyna að laða að þekkingu annars staðar að úr heiminum til þess að við getum öðlast þá þekkingu og reynslu sem við þurfum til að geta síðan í framhaldinu nýtt þessa mikilvægu tegund sem hv. þingmaður lýsti svo réttilega að er afskaplega verðmæt og gæti skilað þó nokkrum tekjum inn í íslenskt þjóðarbú.