stjórn fiskveiða o.fl.
Herra forseti. Ég þakka ráðherra fyrir svarið. Það sem ég var kannski að velkjast með var að núna þegar komnar eru umtalsverðar veiðiheimildir af rándýru hráefni sem er mjög eftirsótt og slegist um þessar heimildir, af hverju komumst við að þeirri niðurstöðu að það þurfi þetta reynslutímabil. En hæstv. ráðherra fór ágætlega yfir það. Ég hef kannski bara eina örsnögga spurningu. Það er eitthvað sem ég fann ekki hér í greinargerðinni og það er hvort þessar veiðiheimildir séu framseljanlegar. Eða er þetta þannig að ef við nýtum þær ekki til fullnustu þá falli þær niður á einhverju tímabili?