152. löggjafarþing — 61. fundur,  4. apr. 2022.

stjórn fiskveiða o.fl.

451. mál
[20:18]
Horfa

Þórunn Sveinbjarnardóttir (Sf) (andsvar):

Hæstv. forseti. Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra út í a.m.k. tvennt vegna þessa frumvarps. Hér er um gríðarleg verðmæti að ræða, eins og ég skil málið, og ljóst að það þarf að afla veiðireynslu og þekkingar á þessum veiðum á ný þó svo að við höfum áður stundað þessar veiðar. Fyrsta spurningin er: Hvernig verður þessum heimildum úthlutað? Það kemur ekki fram að því ég best sé í frumvarpinu. Ég velti fyrir mér hvort þær fari á uppboð eða hvernig þeim verði úthlutað og væri gott að fá svar við því og kannski líka því hvert mat ráðuneytisins er á verðmæti þessa 0,5% heildaraflamarks. Ég held að það sé ágætt að hafa þessar tölur einhvers staðar í hausnum til að skilja málið betur.