152. löggjafarþing — 61. fundur,  4. apr. 2022.

stjórn fiskveiða o.fl.

451. mál
[20:19]
Horfa

félags- og vinnumarkaðsráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson) (Vg) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Ég ætla eiginlega að fá að byrja á því að klára að svara fyrri þingmanni, ég bið hv. þingmann að afsaka það, en það á að vera sérákvæði í reglugerð um úthlutun þessara veiða sem er ekki framseljanlegt eins og í aflamarkskerfinu, þannig að það er Fiskistofa, svo að ég svari hv. þingmanni hérna megin, sem úthlutar þessum aflaheimildum. Það er ekki verið að gera neinar breytingar á því. Hvað varðar síðan úthlutun til Íslands þá hefur hún aukist, ef ég man rétt, úr 0,2% yfir í 0,5% af heildaraflamarki og eins og ég skil málið þá er um að ræða umtalsverð verðmæti sem þarna munu fara hjá garði ef Ísland nýtir sér þetta ekki. Hér er verið að gera atlögu að því að við getum gert það í framtíðinni.