stjórn fiskveiða o.fl.
Hæstv. forseti. Ég velkist ekkert í vafa um það að hér eru mikil verðmæti undir og það er verið að tryggja veiðireynslu og að nýta það heildaraflamark sem Ísland hefur samkvæmt hlutdeild Íslands í ICCAT. Skildi ég ráðherrann rétt að það verði sérákvæði í reglugerð um úthlutun þessara veiðiheimilda og þeim verði úthlutað í rauninni á kontór? Það verði ekki uppboð eða útboð, það verði ekki greitt fyrir þær heldur verði skrifuð reglugerð og þessum miklum verðmætum úthlutað eftir því sem þykir rétt að gera? Mér finnst þetta ekki alveg nógu sannfærandi málatilbúnaður, hæstv. forseti.