152. löggjafarþing — 61. fundur,  4. apr. 2022.

stjórn fiskveiða o.fl.

451. mál
[20:22]
Horfa

félags- og vinnumarkaðsráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson) (Vg) (andsvar):

Hæstv. forseti. Það hefur ekki, samkvæmt þeirri veiðireynslu sem hefur verið hérlendis, komið til þess að það þurfi að takmarka veiðarnar þar sem ásóknin hefur ekki verið mikil. En það gæti auðvitað komið til þess í framtíðinni ef vel gengur og margir sækja um. Þetta eru um 180 tonn á ári, þ.e. þessi 0,5%, þannig að þetta er umtalsvert og líkt og hv. þingmaður kom inn á er mikilvægt að hægt sé að nýta þetta. Ég verð að fá að vísa hinum hluta fyrirspurnar þingmannsins, og bið hana að fyrirgefa mér það, til umræðu í nefndinni þar sem ég hef ekki nákvæmlega svarið við því.