152. löggjafarþing — 61. fundur,  4. apr. 2022.

stjórn fiskveiða o.fl.

451. mál
[20:23]
Horfa

Logi Einarsson (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég hjó eftir því að hæstv. ráðherra sagði að í greinargerðinni stæði að ekki væri gert ráð fyrir umtalsverðum kostnaði vegna þessa, og ég segi nú bara þó það nú væri, en í framtíðinni gætu skapast einhverjar tekjur af þessu í formi skatta. Nú hef ég skilning á því að við svona nýjar veiðar þá getur þurft að vera þolinmóður. En við vitum það líka, hæstv. ráðherra og ég, að loftslagið í heiminum er að breytast. Tegundir munu koma hingað sem áður voru hér ekki. Aðrar fara hugsanlega. Hvert er viðhorf ráðherrans til þess þegar það gerist? Vill ráðherra áfram nýta þetta kerfi sem við höfum núna sem skilar íslensku þjóðinni veiðigjöldum sem standa ekki undir eftirliti og umsjón með auðlindinni? Eða finnst honum að við ættum að feta nýjar slóðir og jafnvel bjóða heimildir út og reyna að hámarka arð þjóðarinnar af auðlindinni?