stjórn fiskveiða o.fl.
Hæstv. forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Hann kemur inn á mjög mikilvægt atriði sem er að það eru nýjar tegundir að berast inn í íslenska fiskveiðilögsögu og ekki bara það, það er líka möguleiki á að aðrar fari út. Eins og fræðin fjalla um þetta þá eru tegundir að færast norðar, einfaldlega vegna þess að sjórinn er að hlýna. Þetta getur haft í för með sér heilmiklar breytingar á vistkerfinu, eins og við þekkjum það í dag, eins og hv. þingmaður kom inn á. Það er að mínu viti afskaplega mikilvægt að við skoðum það hverju sinni þegar nýjar tegundir eru að berast til landsins með hvaða hætti mögulegt er að nýta þær. Eru stofnar þeirra sjálfbærir með tilliti til nýtingar sem er algjört grundvallaratriði? Það er það sem þarf auðvitað að liggja að baki þeirri nýtingu sem við erum að horfa til í framtíðinni.