152. löggjafarþing — 61. fundur,  4. apr. 2022.

stjórn fiskveiða o.fl.

451. mál
[20:25]
Horfa

Logi Einarsson (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég og hæstv. ráðherra erum örugglega sammála um skilgreininguna á sjálfbærni. Félagslegur, efnahagslegur og umhverfislegur stöðugleiki og jafnvægi þar á milli. Nú er erfitt að tala um sjálfbærar veiðar ef arðurinn af auðlindinni skilar sér ekki til þjóðarinnar. Þess vegna endurtek ég spurninguna: Sér ráðherra fyrir sér að við nýtum þá tækifærið, þegar það fara að koma hérna upp nýjar fisktegundir, til að nota aðferðir sem skila okkur einhverjum arði eða mun ríkisstjórnin áfram skáka í því skjólinu að útgerðir hafi lagt svo mikið á sig við að leita og finna að þær eigi rétt á að fá þetta bara kvótasett, eins og hefur auðvitað gerst með nýlegar tegundir sem hafa komið hérna inn?