152. löggjafarþing — 61. fundur,  4. apr. 2022.

stjórn fiskveiða o.fl.

451. mál
[20:42]
Horfa

Logi Einarsson (Sf) (andsvar):

Forseti. Já, hv. þingmaður virðist sannfærður um að það geti verið mögulegt að ná umtalsverðum verðmætum. Þá hlýt ég að spyrja hv. þingmann hvort hann sjái fyrir sér hvernig við ættum að úthluta aflaheimildum þannig að við fengjum það gott verð fyrir það þannig að þetta skilaði þjóðinni einhverju. En mig langar líka aðeins að dvelja við þessar vangaveltur hv. þingmanns um ástandið á túnfiskstofninum — eða túnfiskstofnunum, þetta eru sjálfsagt margar tegundir. Mér fannst þingmaðurinn vilja vera varkár og gera því skóna að hugsanlega ætti þessi bláuuggategund undir högg að sækja. Því spyr ég hv. þingmann aftur hvort hann álíti jafnvel að við eigum að fara varlega í þetta þrátt fyrir að það sé um umtalsverð verðmæti að tefla og hvort við þurfum að afla okkur upplýsinga um það áður.