152. löggjafarþing — 62. fundur,  5. apr. 2022.

störf þingsins.

[13:32]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V):

Virðulegur forseti. Við erum vonandi öll sammála um að þegar ráðherra í ríkisstjórn viðhefur rasísk ummæli þá kallar það á djúpa og yfirvegaða umræðu, bæði um þau orð sem féllu, afsökunarbeiðnina sjálfa og aðdraganda hennar því aðeins þannig getur Alþingi og ríkisstjórn sent skýr skilaboð til þúsunda Íslendinga og annarra sem eiga að búa við þau sjálfsögðu mannréttindi að húðlitur þeirra skipti ekki máli. Hæstv. forsætisráðherra sagði í þinginu í gær að við yrðum að geta tekið því þegar fólk biðst afsökunar á orðum sínum og gjörðum. Ég er hjartanlega sammála því. Það var því gott og jákvætt að formaður Framsóknarflokksins baðst afsökunar í gær þótt vissulega hafi liðið fjórir dagar og pólitískur aðstoðarmaður hans hafi fullyrt í millitíðinni að umrædd ummæli hefðu aldrei fallið. Því miður var afsökunarbeiðni formanns Framsóknarflokksins og innviðaráðherra ekki nema nokkurra klukkustunda gömul þegar aðstoðarmaðurinn svaraði fjölmiðlum aftur með þeim orðum að hún hefði í fyrra svari sínu bara lýst því sem hún heyrði og sá þetta kvöld sem var það að ráðherra hefði ekki vísað til lits heldur eingöngu til þess að þolandinn væri Sjálfstæðismaður. Málið væri því, og þetta er orðrétt tilvitnun: Algjört bull. Við þetta verðum við að staldra. Við erum í þeirri dapurlegu stöðu að ráðherra baðst afsökunar á meiðandi ummælum sem pólitískur aðstoðarmaður hans og ráðgjafi, sem segist hafa séð og heyrt atburðarásina, fullyrðir ítrekað að hafi aldrei fallið. Ef fara á fram hreinskiptin umræða um hvað gerðist og hvernig bregðast skuli við verðum við að fá skýringar á þessu misræmi. Hvað var sagt og á hverju var nákvæmlega beðist afsökunar? Eiga þolendur svona ummæla og þúsundir Íslendinga sem eiga það á hættu að verða fyrir aðkasti vegna uppruna síns ekki kröfu til þess að skilaboðin úr Stjórnarráðinu, frá ráðherra og öðrum sem tala í hans umboði, séu skýr og að enginn vafi leiki á að framkvæmdastjóra Bændasamtakanna sé trúað, að orð þolanda, geranda og vitna stangist ekki á? Þetta er óþægileg umræða en hún verður að eiga sér stað.