152. löggjafarþing — 62. fundur,  5. apr. 2022.

störf þingsins.

[13:35]
Horfa

Arnar Þór Jónsson (S):

Virðulegi forseti. Ég tek undir það með síðasta hv. ræðumanni að það er sjálfsagt að ræða þetta mál. En erindi mitt hér er almennt um störf þingsins því Alþingi er grunnstoð lýðveldisins og það er ekki sjálfgefið að sú staða haldist. Þetta þarf að vera meira en orð á blaði og það þarf að forðast að Alþingi geri sig léttvægt og hversdagslegt. Ég er búinn að fylgjast með störfum þingsins núna nokkuð náið og ég tel að það séu ýmis teikn á lofti um það að þingið sé sjálfu sér verst og gengisfelli sig sjálft. Staðreyndin er sú að það er búið að útvista stórum hluta verkefna Alþingis til Brussel og þingmenn hér halda launum en bera ekki í samsvarandi mæli ábyrgð. Hér er löngum stundum varið í málþóf og aukaatriði en á meðan loga eldar, m.a. í öryggis- og varnarmálum, orkumálum og veikri stöðu lýðræðis og þingræðis hér á landi. Hér í þingsalnum heyrast gífuryrði og innihaldslausar upphrópanir. Mönnum eru gerðar upp sakir, það er höfðað til tilfinninga en ekki til rökhugsunar. Vitræn umræða er drepin niður með staðhæfingum um að þetta og hitt sé fráleitt eða rangt án þess að rök fylgi. Skoðanahroka gætir hér. Tilgangslaust málþóf er haft hér uppi löngum stundum. Krafan hlýtur að vera að það eigi að gera meiri gæðakröfur til umræðna hér í þingsalnum. Stjórnmál eiga ekki að vera ævistarf eða starfsferill og það mætti alveg setja hámark á þingsetu. Þingmenn ættu að hafa reynslu utan stjórnmálanna. Ég vil undirstrika að þingmenn eru ekki fulltrúar flokks síns í kjördæmi sínu. Þeir eru, eins og þeir eru ávarpaðir hér daglega, fulltrúar kjördæmis síns í þinginu og þeir eiga ekki að þjóna sérhagsmunum eða þrýstihópum. Alþingi Íslendinga á að þjóna íbúum landsins og viðfangsefni Alþingis er að hjálpa til við að blása lífi í hið frjálsa hagkerfi þannig að hver og einn geti nýtt hæfileika sína sjálfum sér og öðrum til góðs, framfært fjölskyldu sinni og bætt samfélagið.