störf þingsins.
Virðulegur forseti. Ég kem frá Vestmannaeyjum og tel mig vera heppinn að hafa fengið að alast upp í þeirri náttúruparadís sem Vestmannaeyjar eru. Við Eyjamenn viljum helst hvergi annars staðar vera. Í Eyjum hitti ég konuna mína og í dag á ég fjögur börn sem öll fæddust á sjúkrahúsinu í Vestmannaeyjum. Það er nú þannig í Eyjum eins og víðast hvar annars staðar að þjónustustigið hefur farið ansi hratt niður síðasta áratug. Við erum með flott sjúkrahús með frábæru starfsfólki og mjög vel útbúinni fæðingarstofu en hún er nánast ekkert notuð í dag. Sama gildir um skurðstofuna okkar. Ég man eftir því hér á árum áður þegar margs konar félagasamtök, einstaklingar og fyrirtæki söfnuðu miklum fjármunum til þess að endurnýja og uppfæra tækjabúnaðinn þar. Ég fékk að skoða skurðstofuna síðastliðið haust. Nú er hún notuð sem geymsla á sama tíma og biðraðir eftir aðgerðum á Íslandi hafa sennilega aldrei verið lengri. Við höfum allt til alls í Eyjum til þess að þjónusta stóra sjúklingahópa og a.m.k. yfir vetrarmánuðina er hægt að fá næga gistingu og matsölustaðirnir okkar eru þekktir, ekki bara á Íslandi heldur út fyrir landsteinana.
Þessa stöðu á sjúkrahúsinu varðandi skurðstofuna sjáum við líka varðandi komu sérfræðilækna til Eyja. Þeir eru einfaldlega hættir að koma. Í staðinn er fólk á öllum aldri látið ferðast alla leið til Reykjavíkur í öllum veðrum allan ársins hring. Frá áramótum hefur síðan Landeyjahöfn verið meira og minna lokuð og hluti af ferðalaginu því oft verið mjög erfið sigling til Þorlákshafnar. Sumir hætta við að fara bara út af því. Er ekki svolítið skrýtið að eyða hundruðum milljóna króna á hverju ári í að moka sandi í Landeyjahöfn þegar legið hefur fyrir í fjölda ára (Forseti hringir.) að aðeins vanti lítið fé til þess að klára rannsóknir á mögulegum göngum?