152. löggjafarþing — 62. fundur,  5. apr. 2022.

störf þingsins.

[13:43]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. Það er stór hópur fólks sem hefur verið gerður útlægur úr okkar ríka samfélagi fyrir það eitt að veikjast. Verri andleg og líkamleg heilsa hrjáir hóp fólks eftir Covid og fer hratt versnandi og þá einnig möguleikar þessa fólks til að mæta óvæntum útgjöldum vegna heilsubrests. Húsnæðismálin hjá jaðarsettum hópum í íslensku samfélagi fara hratt versnandi og þá sérstaklega hjá þeim sem eru á leigumarkaði. Enn eru yfir 200 öryrkjar gerðir burtrækir af heimilum sínum vegna veikinda, fluttir nauðugir á hjúkrunarheimili fyrir aldrað fólk. Hversu ömurleg aðferð er það? Aldrað fólk borgar alla sína tíð í lífeyrissjóð en lifir í fátækt vegna keðjuverkandi skerðinga á honum. Fráflæðisvandi, ljótasta orð íslenskrar tungu, er enn notað um eldra fólk sem er lokað veikt inni á spítala og fær ekki viðeigandi þjónustu í réttu umhverfi. Þá er fjöldi fólks enn á biðlistafæribandinu sem færir viðkomandi hægt og bítandi í fíkn, skaða eða bara beint í örorku. Ríkisstjórninni ber að stöðva biðlistafæribandið, sjá til þess að þeir sem þurfa á lífsnauðsynlegum aðgerðum að halda fái þjónustu strax. Það er fáránlegt að skaða veikt fólk með endalausri bið á biðlista eftir nauðsynlegum læknisaðgerðum. Það er fáránleg lausn að halda því uppdópuðu á verkjalyfjum mánuðum og jafnvel árum saman og það er okkur hér inni til háborinnar skammar. Á sama tíma, eftir Covid, stórfjölgar fólki sem þarf að komast í sjúkraþjálfun en það kemst ekki vegna þess að það eru miklar hækkanir hjá sjúkraþjálfurum. Og hvers vegna? Jú, vegna þess að ríkisstjórnin neitar að semja við sjúkraþjálfara, neitar að semja við sérgreinalækna, neitar að semja um það að fólk hafi efni á heilbrigðisþjónustu.