störf þingsins.
Herra forseti. Endómetríósa er sjúkdómur sem getur valdið sárum langtímaverkjum og ófrjósemi. Verkirnir geta verið svo miklir að þeir gera fólki ófært að lifa hefðbundnu lífi. Í því ljósi er með ólíkindum að árið 2022 hafi heilbrigðisvísindin og heilbrigðiskerfið okkar ekki meiri áhuga. Þess í stað mæta sjúklingar skilnings- og aðgerðaleysi og rekast víða á veggi í heilbrigðiskerfinu. Þrautalendingin hjá sumum er að sækja sér nauðsynlega lækningu utan landsteinanna. Hér er rétt að geta þess að sjúkdómurinn leggst eingöngu á konur, reyndar um 10%, en bara konur. Undanfarið hafa stigið fram konur sem lýsa skelfilegri reynslu sinni af barnsburði þar sem annaðhvort móðir eða barn hlaut af varanlegan skaða, jafnvel dauða. Því miður verður aldrei hægt að koma í veg fyrir slíkt með öllu, trúi ég, en það sem þessar konur eiga sameiginlegt er upplifunin af því að ekki hafi verið hlustað á þær. Þær hafi fundið og þær hafi vitað að eitthvað var að, þær hafi vitað lausnina en að ekki hafi verið hlustað á þær.
Fyrir einhverju síðan tók ég þátt í umræðu um velsældarhagkerfið Ísland og þar vitnaði ég í bókina Invisible women, eða Ósýnilegu konurnar, eftir blaðakonuna Caroline Criado Perez. Bókin sýnir með fjölda dæma að heimurinn hefur verið hannaður með karlmenn sem mælistiku fyrir alla. Í bókinni er sérstakur kafli um heilbrigðismál þar sem eru sláandi dæmi um hvernig konur líða fyrir og deyja jafnvel vegna skorts á upplýsingum um áhrif tiltekinna sjúkdóma og um áhrif tiltekinna lyfja á þær, hvernig þessir þættir eru rannsakaðir með karla í huga jafnvel þegar um er að ræða lyf sem eru fyrst og fremst notuð af konum og vegna sjúkdóma sem herja fyrst og fremst og jafnvel aðallega á konur.
Herra forseti. Það eru margar áskoranirnar sem heilbrigðiskerfið okkar stendur frammi fyrir og ýmsir eldar brenna. En það réttlætir ekki að við höldum áfram á braut þessarar mismununar. Heilbrigðisráðherra og við þingmenn (Forseti hringir.) öll berum einfaldlega ábyrgð á því að svara kallinu. Annað er hreinræktaður aumingjaskapur.