152. löggjafarþing — 62. fundur,  5. apr. 2022.

störf þingsins.

[13:48]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Það hafa fleiri áhyggjur af vinnustöðum sínum en við þingmenn. Talsmenn atvinnulífsins hafa lýst yfir áhyggjum yfir skorti á starfsfólki, m.a. í ferðaþjónustu og veitingageiranum, og að þeir óttist að þessi skortur verði viðvarandi. Aukin umsvif í atvinnulífinu á sama tíma og við Íslendingar verðum latari við að búa til börn kallar á stóraukið innflutt vinnuafl. Vandamálið er margþættara því eins og við vitum er hér húsnæðisskortur og þegar er farið að bera á því að hann hamli því að útlendingar komi hingað til að vinna. Hvar á starfsfólkið sem okkur vantar að búa? Á sama tíma klingja viðvörunarbjöllur á vinnumarkaðnum. Nýleg greining Samtaka atvinnulífsins segir okkur að Íslendingar leiti í auknum mæli í ný störf hjá hinu opinbera meðan einkageirinn mannar ný störf með erlendu starfsfólki. Íslensku starfsfólki hjá einkafyrirtækjum fækkar á meðan því fjölgar í opinbera geiranum. Þetta er í samræmi við umkvartanir sem hafa borist mér til eyrna frá atvinnurekendum sem segja sig reka eins konar þjálfunarbúðir fyrir ríkisstarfsmenn. Um leið og hið opinbera auglýsi eftir starfsfólki með reynslu stökkvi þeir til og færi sig yfir í hlýjan og öruggan faðm ríkisins. Það er fullt tilefni til að staldra við og endurhugsa starfsmannahald ríkisins, m.a. hvort ekki sé hægt að útvista í meira mæli. Einkafyrirtæki hafa lagað sig að breyttu umhverfi og tækninýjungum með því að draga úr kostnaði við starfsmannahald samhliða því að bæta þjónustu við viðskiptavini. Hið opinbera hefur ekki breytt skipulagi og starfsháttum í sama mæli. Hið opinbera er farið að bjóða betur á öllum sviðum, jafn góð eða betri laun, meira starfsöryggi og betri vinnutíma. Þetta er varhugaverð þróun. Almenni markaðurinn á að vera leiðandi í launaþróun og öðrum starfskjörum. Þar verða verðmætin til. Þaðan kemur fjármagnið til að greiða fyrir þjónustu hins opinbera.