störf þingsins.
Virðulegur forseti. Garðyrkjuskólinn á Reykjum hefur verið vanræktur. Hann hefur verið fjársveltur sem kemur niður á aðstöðunni og náminu og hefur gert um margra ára skeið. Neysluhættir þjóðarinnar eru að breytast. Þar skiptir starf garðyrkjuskólans lykilmáli. Við veljum frekar hluti sem eru sjálfbærir, umhverfisvænir og grænir. Í ljósi þessa er mikilvægt að við styðjum við slíka framleiðslu og nám sem tengist henni.
Hæstv. fyrrverandi mennta- og menningarmálaráðherra, Lilja Alfreðsdóttir, tilkynnti í ársbyrjun 2021 að starfsmenntanám í garðyrkju á Reykjum í Ölfusi skyldi fært undir hatt Fjölbrautaskóla Suðurlands og þar með frá Landbúnaðarháskóla Íslands. Hæstv. mennta- og barnamálaráðherra staðfesti svo þessa ákvörðun. Ákvörðunin virðist illa ígrunduð því enn er ekki ljóst hvort húsakostur fylgi. Núverandi húsnæði er í niðurníðslu og krefst mikils viðhalds ef það á í raun að fylgja garðyrkjuskólanum. Eins og þetta lítur út núna virðist landbúnaðarháskólinn eiga húsnæðið.
Fram er komin þingsályktunartillaga þar sem lagt er til að í stað þessarar óheillafarar sé skólinn gerður að sjálfseignarstofnun og honum tryggt fjármagn til að styrkja stoðir hans til frambúðar. Ég er meðflutningsmaður á þeirri tillögu ásamt öllum þingmönnum Suðurkjördæmis að þingmönnum Framsóknarflokksins undanskildum. Við í Viðreisn krefjumst þess að breytingar á skipulagi garðyrkjuskólans verði gerðar í sem fyllstu samráði við nemendur, starfsfólk og aðstandendur hans. Enginn þekkir hagsmuni skólans betur.
Virðulegur forseti. Ég verð að segja að framferði hæstv. ráðherra Framsóknarflokksins í garð garðyrkjuskólans er sérstakt, svo ekki sé meira sagt þegar við blasir að þetta er menntun (Forseti hringir.) sem þarf að lifa til lengri framtíðar og þörfin fyrir fleira fólk með garðyrkjumenntun muni bara aukast.