152. löggjafarþing — 62. fundur,  5. apr. 2022.

störf þingsins.

[13:52]
Horfa

Helga Þórðardóttir (Flf):

Virðulegi forseti. Ég vil í dag gera að umtalsefni framtíð Landspítalans vegna McKinsey-skýrslunnar sem kom út um daginn. Samkvæmt skýrslunni virðist stefna í skort á legurúmum, sem munar helmingi, þ.e. árið 2040 mun Landspítalinn ekki geta sinnt nema helmingnum af þeim sjúklingum sem þangað leita. Með vissum aðgerðum er hugsanlegt að ástandið verði helmingi betra, þ.e. að Landspítalinn geti samt ekki sinnt 25% af þeim sjúklingum sem til hans leita. Í stað 85% rýmisnýtingar sem stefnt er að þá verður hún 125%, sem er heimsmet.

Herra forseti. Þetta eru svo gríðarlega stór tíðindi að ég tel fulla þörf á sérstakri umræðu um skýrsluna sem fyrst eftir páska og það er ýmislegt fleira í henni líka sem ég er búin að skoða. En í sögulegu samhengi eru þetta ekki ný tíðindi. Landspítalinn við Hringbraut var opnaður í desember 1930. Tæpum sex mánuðum síðar var hann fullsetinn og hefur verið það síðan. Því hefur verið skortur á legurúmum á Landspítalanum í 91 ár. Að reka mikilvægustu stofnun landsins í ófullnægjandi húsnæði í tæp 100 ár er harmleikur sjúklinga Landspítalans. Landspítalabókin var gefin út í tilefni 50 ára afmælis Landspítalans árið 1980. Þar skrifar fyrrverandi ráðuneytisstjóri heilbrigðisráðuneytisins, Páll Sigurðsson, eftirfarandi í formála bókarinnar, með leyfi forseta:

„Og í raun er öll byggingarsagan merki um það, að á hverjum tíma hefur stór hópur ráðamanna talið slíka uppbyggingu óþarfa. Nú á dögum eru það nákvæmlega sömu úrtöluraddirnar, sem telja áætlanir um nýbyggingarframkvæmdir við Landspítalann óþarfar og allt of kostnaðarsamar.“

Virðulegi forseti. Ég vil ítreka beiðni mína um að setja þetta mál á dagskrá svo við endurtökum ekki söguna.