152. löggjafarþing — 62. fundur,  5. apr. 2022.

störf þingsins.

[13:55]
Horfa

Þórunn Sveinbjarnardóttir (Sf):

Hér þrífast engir fordómar gagnvart lituðu fólki, sagði enginn litaður einstaklingur nokkurn tímann, skrifaði ung kona á facebook-síðuna sína í morgun, hæstv. forseti. Íslenskt samfélag þarf að átta sig á því að rasismi er ekki eitthvað sem stundað er í útlöndum heldur daglegt og frekar hversdagslegt hlutskipti fólks hér á landi sem einhverjum gæti fundist líta út fyrir að geta ekki rakið ættir sínar aftur til miðalda í Íslendingabók. Rasismi getur birst á tiltölulega meinlausan en afar þreytandi hátt, t.d. með því að einstaklingur er ávarpaður á ensku í verslun eða á vinnustað. Það getur birst sem áreiti beint og óbeint: Má ég snerta á þér hárið? Hvaðan ertu? Úr Breiðholtinu? Nei, ég meina, hvaðan ertu? og þannig mætti áfram telja. Svo eru þessi ömurlegu rasísku komment sem lesa má í kommentakerfunum á miðlunum og beinar persónulegar árásir og viðbjóðslegar dylgjur um nafngreinda einstaklinga.

Forseti. Sjaldan, sem betur fer, afhjúpa æðstu ráðamenn þjóðarinnar sig með þeim hætti sem innviðaráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson, hæstv. verð ég víst að segja, gerði á búnaðarþingi gagnvart framkvæmdastjóra Bændasamtakanna. Þar voru siðareglur ráðherra og þingmanna brotnar, allar velsæmisreglur og líklega lög. Ráðherrann, eins og við öll sem hér störfum, er fyrirmynd og það eru meiri kröfur gerðar til okkar en almennra borgara í þessu landi vegna þess að við erum kjörnir fulltrúar.

Það var líka ömurlegt, forseti, að hlýða á forsætisráðherra í gær úr þessum stól, ráðherra jafnréttismála og mannréttinda, ekki bregðast við með afgerandi hætti og fordæma framkomu ráðherra síns í ríkisstjórninni. Þannig hefði hún getað lagt sitt lóð á vogarskálarnar gegn rasisma á Íslandi. Ræturnar eru djúpar. Meinsemdin er mikil og við verðum að horfast í augu við hana. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)