152. löggjafarþing — 62. fundur,  5. apr. 2022.

störf þingsins.

[13:57]
Horfa

Aðalsteinn Haukur Sverrisson (F):

Virðulegi forseti. Til að stuðla að aukinni velferð og uppbyggingu er nauðsynlegt að stækka hagkerfið okkar. Við Íslendingar eigum að hlúa að vænlegustu vaxtarsprotum hagkerfisins. Ung fyrirtæki skapa góð störf til framtíðar og miklar útflutningstekjur. Margt gott hefur verið gert hér á landi, samanber aukna endurgreiðslu á rannsóknar- og þróunarkostnaði og eins hefur verið komið á skattalegum hvötum til einstaklinga sem fjárfesta í nýsköpunarfyrirtækjum. Samt sem áður stöndum við frammi fyrir skorti á tæknimenntuðu fólki. Við þurfum að laða að fleiri erlenda sérfræðinga til starfa hér á landi. Í því sambandi er nauðsynlegt fyrir Alþingi að fara í endurskoðun á lögum um innflytjendur og atvinnuleyfi svo núverandi regluverk fyrir erlenda sérfræðinga sem koma hingað frá löndum utan ESB verði skilvirkara en það er í dag. Auðugustu þjóðir heims leggja mesta áherslu á að byggja upp og veita viðvarandi stuðning við nýsköpun og þá sérstaklega í hugverkaiðnaði. Sem dæmi hefur Ísrael farið í stórfelldar aðgerðir í þágu innlends tækniiðnaðar. Þarlend fyrirtæki sóttu 25,4 milljarða bandaríkjadala vaxtarfjármagn á síðasta ári sem er 136% vöxtur á milli ára. Þar hefur tæknirisum fjölgað á ógnarhraða með meðfylgjandi velmegun samfélagsins. Á Íslandi geta erlendir sérfræðingar fengið 25% lækkun á tekjuskattsstofni fyrstu þrjú árin og ég tel að við eigum hvort tveggja að hækka þetta hlutfall og fjölga árunum sem þessi afsláttur gildir. Þannig aukum við samkeppnishæfni Íslands. Við höfum innviðina og fjármunina en okkur sárvantar fólk. Ráðumst í aðgerðir til að ná í þá erlendu tæknimenntuðu sérfræðinga sem við þurfum. Ef við viljum halda áfram að bæta velferð og uppbyggingu verðum við að fjárfesta í uppbyggingu nýsköpunar á Íslandi. Leggjum frá okkur teskeiðina og mundum skófluna.