störf þingsins.
Virðulegur forseti. Hversdagslegur rasismi og kvenfyrirlitning lifir enn sem komið er góðu lífi innan ríkisstjórnarinnar. Ef marka má orð hæstv. forsætisráðherra þurfum við að sætta okkur við að ummæli hæstv. innviðaráðherra hafi hvorki verið rædd á vettvangi ríkisstjórnarinnar í morgun né innan Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs sérstaklega. Ég neita fyrir mitt leyti að sætta mig við að hversdagslegur rasismi og kvenfyrirlitning sé gott sem samþykkt í ríkisstjórn íslensku íhaldsflokkanna. Eigum við virkilega að trúa því að það séu mannleg mistök að formaður Framsóknarflokksins hafi ekki ávarpað framkvæmdastjóra Bændasamtaka Íslands, Vigdísi Ósk Häsler Sveinsdóttur, með nafni eins og henni er sæmandi heldur hafi hann kosið, ég endurtek hann valdi, að smætta hana niður á grundvelli kyns og kynþáttar? Samflokksfólki hæstv. innviðaráðherra hefur verið falið það vafasama hlutverk að biðjast afsökunar á framferði hans og þau ýja beinlínis að því að svona gerist bara.
Virðulegur forseti. Svona orðfæri er kannski daglegt brauð í Framsóknarflokknum en svo er sannarlega ekki í öllum stjórnmálaflokkum.
Virðulegur forseti og ágæti þingheimur. Ég ætla að nota tækifærið og minna á að það er ekki nóg að biðjast afsökunar. Hugur verður að fylgja máli. Hæstv. innviðaráðherra heldur kannski að hann hafi beðist afsökunar og það sem verra er, ráðherrar í íhaldsríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur virðast halda það líka. Innihaldslaust hjal ráðherra um eigið ágæti, trú á jafnrétti, viðkvæmar tilfinningar annarra og að mannleg mistök sem þessi séu jafn náttúrulegur hluti af lífinu og upprisa sólar að morgni er ekki afsökunarbeiðni og nú neitar innviðaráðherra að tjá sig við fjölmiðla. Maður sem væri hryggur yfir framkomu sinni myndi nota slíkt tækifæri til að koma afstöðu sinni á hreint. Innviðaráðherra virðist bara vera leiður yfir því að hafa verið staðinn að verki. Er ekki bara best að segja af sér?