störf þingsins.
Herra forseti. Mig langar að halda á lofti máli sem margoft hefur borið á góma hér í þingsal en það er blóðgjöf homma. Þann 16. mars tóku gildi ný lög í Frakklandi sem heimila fólki óháð kynhneigð að gefa blóð. Svo ég vitni í orð heilbrigðisráðherra Frakklands, með leyfi forseta: Við erum að afnema mismunun sem er ekki lengur hægt að réttlæta. Á undanförnum árum hafa önnur lönd, t.d. Grikkland, Ungverjaland og Bretland, létt á reglum sem banna blóðgjöf sam- og tvíkynhneigðra karlmanna.
Í tillögu til þingsályktunar um aðgerðaáætlun í málefnum hinsegin fólks 2022–2025, sem hæstv. forsætisráðherra Katrín Jakobsdóttir hefur lagt fram og er nú til umfjöllunar í allsherjar- og menntamálanefnd, er lögð til reglugerðarbreyting með það að markmiði að afnema mismun sem blóðgjafar hafa sætt á grundvelli kynhneigðar. Málið snýst auðvitað um öryggi blóðþega og af því vill ekkert okkar gefa afslátt. Staðan er hins vegar sú að samkvæmt gögnum frá franska heilbrigðisráðuneytinu er áhættan sirka einn af hverjum 11,6 milljónum eða hugsanlega eitt HIV-smit af völdum blóðgjafar á fjögurra ára fresti. Ég spyr: Eru það hærri tölur en gengur og gerist með aðra smitsjúkdóma og blóðgjöf, svo sem lifrarbólgu? Eða erum við hugsanlega enn að horfa til úreltra viðhorfa frá tímum alnæmisfaraldursins á áttunda áratugnum? Við munum aldrei geta tryggt 100% öryggi við blóðgjöf, hvort sem um ræðir HIV eða aðra smitsjúkdóma.
Málið var í góðum farvegi á síðasta kjörtímabili og fylgdi þáverandi heilbrigðisráðherra því eftir af festu. Nú vil ég kalla eftir því að málið gleymist ekki og að við sofnum ekki á verðinum. Ég biðla til heilbrigðisráðherra og þingheims alls að við tryggjum fjármagn og eftirfylgd svo við getum hætt þessari mismunun í eitt skipti fyrir öll. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)