um fundarstjórn.
Forseti. Innviðaráðherra hefur orðið uppvís að hegðun sem er ólíðandi fyrir ráðherra í ríkisstjórn og formann stjórnarflokks. Hann hefur farið undan í flæmingi frá fjölmiðlum og neitar að svara því með hvaða hætti hann hyggst axla ábyrgð og bæta fyrir brot sitt öðruvísi en með aumri afsökunarbeiðni á samfélagsmiðlum.
Nú stendur til að taka hér á Alþingi fyrir umræðu um fjármálaáætlun og á innviðaráðherra að vera viðstaddur hér á eftir til að svara spurningum um sín málefnasvið. Það gengur ekki, forseti, að Alþingi haldi bara áfram eins og ekkert hafi í skorist, enda starfar ríkisstjórnin í umboði meiri hluta þingsins. Ég fer því fram á að ráðherra komi fyrir þingið, geri grein fyrir máli sínu í yfirlýsingu samkvæmt 61. gr. þingskapa og í kjölfarið gefist þingmönnum kostur á að eiga orðastað við ráðherra. Ráðherra verður að gera hreint fyrir sínum dyrum gagnvart þinginu og almenningi áður en lengra er haldið.