um fundarstjórn.
Virðulegi forseti. Ég tek undir með hv. þingmanni. Sigurður Ingi Jóhannsson er alþingismaður og hann gegnir ráðherraembætti í umboði meiri hluta Alþingis. Við hér inni hljótum að gera skýlausa kröfu um að hann svari fyrir framgöngu sína en sýni ekki fjölmiðlum bara afturendann á sér. Í gær sagði forsætisráðherra að hún dragi ekki heilindi Sigurðar Inga í efa, mannsins sem baðst ekki afsökunar fyrr en eftir að pólitískum aðstoðarmanni hafði mistekist að ljúga hann út úr málinu. Áðan tjáði hæstv. félagsmálaráðherra sig um málið á þeim nótum að samfélagið ætti að læra af þessu, læra af framgöngu Sigurðar Inga. Hann sagðist vonast til þess að þetta yrði alla vega til þess að við sem samfélag tækjum ekki þátt í að láta svona út úr okkur. Hann yfirfærir ábyrgðina á samfélagið allt. Það er samfélagið sem á að læra af þessu en heilindi Sigurðar Inga verða ekki dregin í efa, segir forsætisráðherra.
Herra forseti. Við getum ekki setið þegjandi undir þessu. Ég tek undir kröfu hv. þm. Halldóru Mogensen um að ráðherra geri hreint fyrir sínum dyrum (Forseti hringir.) samkvæmt 61. gr. þingskapa. Það er bara lágmarkskrafa áður en við höldum þingstörfum áfram.