152. löggjafarþing — 62. fundur, 5. apr. 2022.
um fundarstjórn.
Forseti vill geta þess að hann hefur átt fundi með þingflokksformönnum um fyrirkomulag umræðunnar í dag og dagskrá dagsins í dag og dagsins á morgun. Þessi ósk kom ekki fram þannig að forseti hefur í hyggju að halda áfram dagskránni eins og hún var áætluð og þingflokksformenn voru upplýstir um og tóku þátt í að móta.