um fundarstjórn.
Hæstv. forseti. Ég kem hér upp til að styðja beiðni Halldóru Mogensen, hv. þingflokksformanns Pírata, og minna á hlutverk hæstv. forseta og þess ákvæðis sem við höfum í þingsköpum til að ræða saman þannig að innviðaráðherra mæti í salinn, tali við þingheim og við getum skipst á skoðunum, horfst í augu og talað saman eins og almennilegt fólk. Til þess er þessi salur. Þess vegna er sjálfsagt og einfalt að verða við beiðni okkar og koma þeirri samræðu á við allra fyrsta tækifæri hér á hinu háa Alþingi þannig að innviðaráðherra geti gert hreint fyrir sínum dyrum og hv. þingmenn geti rætt um stöðuna eins og hún er og við öll sem erum hér inni sýnt að við getum risið undir því starfi sem okkur hefur verið falið og undir þeim siðareglum sem við höfum sett okkur.