um fundarstjórn.
Virðulegi forseti. Hv. þingmenn og kæra þjóð. Ég hef ferðast meira en góðu hófi gegnir um allan heim og alls staðar sem ég kem þá segi ég að ég sé frá Íslandi og ég er mjög stoltur af því. Ég var í Bangkok á tveimur stöðum sama daginn. Ég sagði: Ég er frá Íslandi. Þá sagði viðmælandi minn: Eiður Guðjohnsen. Ég var í Buenos Aires og þá sagði viðmælandi minn: GusGus. En það sem ég vildi segja við ykkur er þetta: Árið 1991 fór ég til San Diego í boði Jóns Sigurðssonar sem seinna varð ráðherra og hann fór með mig á samkomu Íslendinga í alþjóðagarðinum í San Diego. Þar voru samankomnir 40 einstaklingar sem flestir töluðu ekki íslensku og höfðu margir hverjir aldrei komið til Íslands. En þeir voru svo stoltir af því að vera Íslendingar að þeir höfðu þörf fyrir að láta alla vita. Ég segi bara: Sitt sýnist hverjum.