152. löggjafarþing — 62. fundur,  5. apr. 2022.

um fundarstjórn.

[14:17]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V):

Herra forseti. Samkvæmt þessari 61. gr. er það svo að forseti getur heimilað ráðherrum og formönnum stjórnmálaflokka að koma og gefa sérstaka yfirlýsingu og síðan eftir atvikum fulltrúum annarra flokka að bregðast við. Þetta felur í sér heimild, líklega ekki boðvald, forseta yfir einstaka ráðherrum. En ég tek undir með þeim þingmönnum sem hér hafa óskað fulltingis forseta í því að biðja þá ráðherra að koma hingað og hvetja til þessarar umræðu. Ég þarf ekkert að orðlengja alvarleikann frekar. Mig langar þó til að benda á það til viðbótar að auk mjög rýrra orða og athugasemda samráðherra formanns Framsóknarflokksins um málið þá dregur hæstv. mennta- og barnamálaráðherra, held ég að ég fari rétt með, þann lærdóm af málinu að samfélagið þurfi allt að læra. Ég ætla mér að leyfa mér að vera ósammála því. En ég ætla hins vegar að segja að Alþingi þarf að læra af málinu. Við þurfum að vanda okkur við viðbrögð okkar í þessu máli. Hv. formaður Framsóknarflokksins, ekki eingöngu ráðherrann, er þingmaður. Blettur á hann er blettur á okkur öll í þessu tilliti og ég hef óskað eftir umræðu hér um málið og þær afleiðingar og þann lærdóm sem við sem Alþingi ættum að draga af þessu en hafa almenning fyrir utan. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)