um fundarstjórn.
Forseti. Forseti talaði áðan um að búið væri að semja um þingstörfin næstu tvo dagana eða svo. Gott og blessað. Þetta mál og beiðni um að fara eftir 61. gr. þingskapalaga er bara viðbót við það, það gerist þá á fimmtudaginn eða einhvern veginn inn á milli eftir því sem hægt er að haga því. Í þessari umræðu allri finnst mér áhugaverðast og nokkuð sem við þyrftum að ræða við hæstv. innviðaráðherra að fyrir nokkrum áratugum síðan, árið 1991 eins og hv. þm. Tómas A. Tómasson kom inn á áðan, gerði fyrrverandi forseti Bandaríkjanna nokkurs konar árás á pólitíska rétthugsun. Pólitísk rétthugsun snýst einmitt um það að við gerum sáttmála með okkur um að nota ekki stöðu okkar til að ráðast á minnihlutahópa. Síðan þá hefur því hugtaki verið snúið upp í ákveðna bölvun, árás á tjáningarfrelsið á einhvern hátt, sem er mjög öfugsnúið því að að sjálfsögðu eiga þau sem ekki geta borið hönd fyrir höfuð sér (Forseti hringir.) ekki að þurfa að gera það. Um nákvæmlega það (Forseti hringir.) snúast þau lög sem voru sett hérna 2018. Þess vegna er svo mikilvægt að við tökum þessa umræðu.