152. löggjafarþing — 62. fundur,  5. apr. 2022.

um fundarstjórn.

[14:20]
Horfa

Logi Einarsson (Sf):

Herra forseti. Um alvarleika ummæla hæstv. innviðaráðherra þarf ekki að fjölyrða, en ég vil þó nefna það að á sama tíma erum við í allsherjar- og menntamálanefnd að fjalla um breytingar á lögum um jafna meðferð óháð kynþætti, þjóðernisuppruna og fleiri mismunaþáttum. Þar er beinlínis lagt bann við mismunun, rógburði eða að hæðast að eða smána ákveðna hópa. Af því að 61. gr. heimilar forseta að leyfa ráðherra að koma og gefa yfirlýsingu þá vil ég hvetja hæstv. innviðaráðherra til að fara fram á að fá að gefa þessa yfirlýsingu. Annars er borðleggjandi að umræða í 2. umr. um þetta frumvarp hlýtur a.m.k. að einhverju marki að snúast um það með hvaða hætti við sjálf ætlum að virða þau lög sem við erum að setja okkur í þessum töluðu orðum.