152. löggjafarþing — 62. fundur,  5. apr. 2022.

um fundarstjórn.

[14:22]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V):

Virðulegur forseti. Ég kem hér upp til að taka undir þá beiðni sem liggur hér fyrir. Það er algjörlega skýrt skv. 61. gr. að forseti getur heimilað það sem hér er farið fram á ef ástæða er til. Því miður er ekki hægt að skilja viðbrögð hæstv. forseta Alþingis rétt áðan öðruvísi en svo að honum finnist ekki ástæða til. Því munum við þingmenn, ef af verður, vera í þeirri stöðu að ræða við hæstv. innviðaráðherra og formann Framsóknarflokksins um pólitísk mál í dag á sama tíma og a.m.k. tveir ráðherrar í ríkisstjórn Íslands treystu sér ekki til að lýsa yfir stuðningi við hann að loknum ríkisstjórnarfundi í morgun.

Hæstv. fjármálaráðherra segir: Ég ætla ekki að leggja neitt á mig til þess að hjálpa til við það hvort ráðherrann eigi að segja af sér og hæstv. háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra vildi ekkert tala um það hvort hæstv. innviðaráðherra ætti að segja af sér. Eigum við þingmenn stjórnarandstöðunnar að eiga hér (Forseti hringir.) orðastað við ráðherra þegar það liggur ekki einu sinni fyrir að aðrir ráðherrar í ríkisstjórn (Forseti hringir.) styðji hann heils hugar eins og sú staða sem nú er uppi gefur svo skýrt vitni um?