152. löggjafarþing — 62. fundur,  5. apr. 2022.

um fundarstjórn.

[14:25]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf):

Virðulegi forseti. Ég vil taka undir með hv. þm. Andrési Inga Jónssyni. Ég held að það þurfi ekki að raska þingstörfum hér að nokkru leyti að virkja þessa 61. gr. þingskapa nema síður sé. Ég held að það gæti einmitt liðkað fyrir þingstörfunum hérna í dag og næstu daga ef þessi grein yrði virkjuð og ráðherrar kæmu hingað og gerðu hreint fyrir sínum dyrum. Við á Alþingi erum sett í svolítið undarlega stöðu með þessari framgöngu ráðherra og með þessum óskýru svörum og óskýru afstöðu samráðherra hans og ég held að það sé alveg á kristaltæru að það væri vanvirðing við fólk af erlendum uppruna á Íslandi ef við myndum bara halda hér áfram umræðu um fjármálaáætlun eins og ekkert hefði í skorist. Við getum ekki gert það. Þannig að ég tek enn og aftur undir þá kröfu að 61. gr. laga um þingsköp verði virkjuð og innviðaráðherra a.m.k. boðið að gera hér hreint fyrir sínum dyrum.