um fundarstjórn.
Virðulegi forseti. Ég vil koma hér upp öðru sinni til að styðja við þá ósk sem hér er fram komin. Ég tel fulla ástæðu til að þetta samtal og þessi umræða eigi sér stað hér í þingsal strax í dag. Málið er einfaldlega þess eðlis. Ég vil líka nefna það sem hv. þingmenn eru hér að tala um, að það er stjórnarandstaðan ein sem stendur í þessum sal í dag og fer fram á þetta. Stundum felast sterk skilaboð í þögninni. Það eru skilaboð í því þegar hæstv. Framsóknarráðherrann gengur í hringi í leit að ráðherrabílnum sínum fyrir utan ráðherrabústaðinn, neitar að svara öllum spurningum. Það eru skilaboð í því líka hvernig hæstv. ráðherrar Sjálfstæðisflokksins tala. Við þurfum hins vegar á þessu samtali að halda hér í þessum sal í dag. Það þarf að ræða þetta mál.