um fundarstjórn.
Virðulegi forseti. Ég vil bara taka aðeins til máls í tilefni af því að rangt er farið með orð mín hér í þingsal og því haldið fram að ég hafi neitað að veita ráðherranum stuðningsyfirlýsingu. Það er bara alrangt. Það sem ég var að bregðast við var beiðni fréttamanns um að taka afstöðu um það hvort annar stjórnmálamaður ætti að segja af sér og það er bara mín skoðun að það fari ekkert sérstaklega vel á því að einn stjórnmálamaður segi annan eiga að segja af sér. Það eru reyndar nokkrir hér í þingsal sem oft hafa lýst þeirri skoðun sinni að ég eigi að segja af mér og ég hef ekki orðið við því og ég tel að afstaða gagnvart þeirri spurningu liggi bara hjá ráðherranum sjálfum. Það hvort ég treysti mér til að starfa með hæstv. ráðherra birtist með því að maður mætir á ríkisstjórnarfund og við erum í góðu samstarfi og höfum átt gott samstarf. Ef menn eru að reyna að gera sér einhvern leik að því að fá einhverja úr stjórnarliðinu til að verja orð hæstv. ráðherra og skapa þannig einhvern andstæðing þá held ég að hægt sé að afgreiða það í eitt skipti fyrir öll. Orðin eru að sjálfsögðu óverjandi og ráðherrann hefur sjálfur lýst því yfir að hann ætli ekki að reyna að verja þau.